Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. júní 2016 20:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gareth Bale: Vissum að þetta yrði ljótur leikur
Bale og félagar eru komnir áfram
Bale og félagar eru komnir áfram
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, helsta stjarna Wales, segir að sigurinn gegn N-Írlandi í dag hafi verið eins ljótur hann hafi búist við.

Wales vann 1-0 sigur á N-Írlandi í dag, en sigurmarkið var sjálfsmark frá Gareth McAuley, varnarmanni N-Íra.

„Hvað get ég sagt? Við vissum að þetta yrði ljótur leikur, auðvitað ekkert illa meint gegn Norður-Írlandi, þeir gerðu okkur erfitt að spila, við vissum það frá byrjun," sagði Bale.

„Við vissum að við myndum ekki fá boltann mikið fram á við. Það var ekki mikið pláss en hvað get ég sagt, liðið er það mikilvægasta. Við unnum vel, við gerðum allt sem við gátum og við vissum að mark myndi stela leiknum og sem betur fer þá datt það fyrir okkur."

„Þú getur ekki beðið um meira, þetta var frábært."

Athugasemdir
banner