4. deild karla - C riðill
Árborg 2 - 1 Kormákur/Hvöt
0-1 Sigurður Bjarni Aadnegard ('14)
1-1 Árni Páll Hafþórsson ('63)
2-1 Árni Páll Hafþórsson ('70)
Árborg 2 - 1 Kormákur/Hvöt
0-1 Sigurður Bjarni Aadnegard ('14)
1-1 Árni Páll Hafþórsson ('63)
2-1 Árni Páll Hafþórsson ('70)
Árborg komst upp að hlið Léttis í C-riðli 4. deildar karla í gær.
Árborg fékk heimsókn frá Kormáki/Hvöt og tókst að lokum að landa sigri þrátt fyrir strembna byrjun í leiknum.
Gestirnir komust yfir eftir 14 mínútur með marki frá Sigurði Bjarna Aadnegard og Kormákur/Hvöt leiddi í hálfleik, 1-0.
Í seinni hálfleiknum vaknaði Árborg til lífsins, nánar tiltekið Árni Páll Hafþórsson. Hann skoraði tvö mörk og kom Árborg í 2-1.
Það reyndist niðurstaðan í þessum leik, 2-1 sigur Árborgar. Árborg er núna komið upp að hlið Léttis á toppi C-riðils í 4. deildinni, en Kormákur/Hvöt hefur níu stig í 5. sæti.
Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir