Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. janúar 2015 21:54
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Stoke ekki í erfiðleikum með Rochdale
Moses skoraði glæsilegt mark úr þröngu færi gegn Rochdale.
Moses skoraði glæsilegt mark úr þröngu færi gegn Rochdale.
Mynd: Getty Images
Rochdale 1 - 4 Stoke City
0-1 Bojan Krkic ('4)
0-2 Stephen Ireland ('52)
0-3 Victor Moses ('62)
1-3 Rhys Bennett ('78)
1-4 Jon Walters ('94)

Stoke City lenti ekki í vandræðum með C-deildarlið Rochdale er liðin mættust í enska FA bikarnum.

Bojan Krkic kom gestunum yfir með laglegu marki snemma í leiknum og Stephen Ireland tvöfaldaði forystu gestanna snemma í síðari hálfleik.

Victor Moses skoraði magnað mark á 62. mínútu áður en heimamenn minnkuðu muninn korteri síðar. Það var Jon Walters sem átti síðasta orðið þegar hann gerði lokamark leiksins á síðustu sekúndunum.

Stoke mætir Blackburn Rovers í 16-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner