Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. janúar 2015 13:48
Elvar Geir Magnússon
Lucas Silva formlega orðinn leikmaður Real (Staðfest)
Lucas Silva virðist sáttur.
Lucas Silva virðist sáttur.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Lucas Silva stóðst læknisskoðun hjá Real Madrid í dag og skrifaði í kjölfarið undir samning við Real Madrid til ársins 2020.

Þessi 21 árs leikmaður kemur frá Cruzeiro í Brasilíu en hann hefur leikið með yngri landsliðum Brasilíu.

Hann lék stórt hlutverk með Cruzeiro sem varð brasilískur meistari í fyrra og árið þar á undan.

Kaupverð er talið 9,7 milljónir punda en Silva var kynntur fyrir stuðningsmönnum á Santiago Bernabeu leikvanginum í dag.

Real er sem stendur á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner