Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. febrúar 2017 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Phil Neville: Rashford getur orðið jafn góður og Griezmann
Mynd: Getty Images
Phil Neville, fyrrum leikmaður Everton og Manchester United telur Marcus Rashford leikmann Manchester United geta orðið jafn góðan og Antoine Griezmann á næstu árum.

„Marcus Rashford er góður leikmaður, Rashford mun þurfa áskoranir því hann hefur mikla hæfileika."

„Þú hefur rétt á því að vera spenntur fyrir hugsanlegri komu Griezmann en Rashford getur orðið jafn góður og Griezmann á næstu tveimur til þremur árum", sagði Phil Neville.

Marcus Rashford hefur skorað 7 mörk í 34 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu, hann er í leikmannahópi Manchester United sem mætir Southampton í úrslitaleik enska deildarbikarsins í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner