Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. mars 2015 17:16
Magnús Már Einarsson
Terry skrifar undir nýjan samning við Chelsea (Staðfest)
Mynd: Getty Images
John Terry hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Chelsea.

Hinn 34 ára gamli Terry mun því leika áfram með Chelsea á næsta tímabili.

Fyrri samningur Terry átti að renna út í sumar en Jose Mourinho lagði áherslu á að halda honum hjá Chelsea.

Terry hefur unnið fjölda titla með Chelsea en hann er leikjahæsti leikmaður liðsins í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi.

Terry lék einnig 78 leiki með enska landsliðinu á sínum tíma áður en hann hætti að spila með landsliðinu árði 2012.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner