Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. maí 2015 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Bild 
Klopp í sex mánaða frí - Verður laus í janúar
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp er meðal eftirsóttustu knattspyrnustjóra Evrópu eftir sjö mögnuð ár við stjórnvölinn hjá Borussia Dortmund.

Klopp kvaddi félagið eftir 3-2 sigur á heimavelli gegn Werder Bremen í lokaumferðinni en á einn leik eftir í þjálfarastólnum, bikarúrslitin gegn Wolfsburg næsta laugardag.

Þýska dagblaðið Bild greinir frá því að Klopp sé á leið í sex mánaða frí og verði því klár að taka við liði í janúar.

Fréttamenn hjá Guardian og Manchester Evening News hafa einnig greint frá þessu eftir frétt Bild um málið.
Athugasemdir
banner
banner