Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 26. júlí 2016 21:50
Arnar Daði Arnarsson
Þórður: Einstaklingsmistök sem kosta okkur leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög fúll," sagði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA eftir 2-1 tap liðsins gegn FH í botnbaráttuslag í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Eftir umferðina er ÍA áfram á botni deildarinnar með fjögur stig að loknum tíu umferðum.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 ÍA

„Það vantaði að skora mörk. Við gerum dýr einstaklingsmistök í mörkunum sem við fáum á okkur og síðan eigum við að skora fleiri mörk gegn þessu liði," sagði Þórður sem fannst liðið falla full aftarlega eftir að þær jöfnuðu metin eftir klukkutíma leik.

„Það var eins og þær væru sáttar við það að jafna. Þetta var ekki nægilega gott hjá okkur."

Þórður segir að það hafi verið þungt andrúmsloft inn í klefa eftir leik.

„Þær eru mjög svekktar, og það er allt í lagi. Þær eiga vera svekktar eftir að hafa tapað svona leik sem þær eiga að lágmarki að ná jafntefli úr. Og við eigum að vinna þetta."

„Það hefur verið stígandi í síðustu leikjum. Fínn leikur gegn KR og leit ágætlega út hérna framan af, en síðan eru dýr einstaklingsmistök sem kosta okkur leikinn," sagði þjálfari botnsliðs ÍA í Pepsi-deild kvenna.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner