Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. ágúst 2015 22:45
Arnar Geir Halldórsson
Martinez: Stones er ekki til sölu
Stones fær ekki að fara frá Everton
Stones fær ekki að fara frá Everton
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, stjóri Everton, staðfesti í kvöld að beiðni John Stones um sölu yrði hafnað.

Eins og við greindum frá í gær óskaði Stones eftir því að fá að fara frá félaginu en Martinez segir ekki koma til greina að selja varnarmanninn.

„Stuðningsmenn okkar vita að við erum að reyna að bæta okkur og verða eins góðir og við getum", sagði Martinez eftir leik liðsins gegn Barnsley í kvöld.

„John spilar mikilvægt hlutverk í því og við erum á því að hvort sem er í lífinu eða í fótbolta þá geta peningar ekki keypt allt".

„Þetta snýst um gildi og John er mikilvægur hluti af okkar framtíð. Hann er ekki til sölu",
sagði Martinez ákveðinn.

Athugasemdir
banner
banner
banner