UFC stjarnan, Connor McGregor, gæti barist á Santiago Benabeu í framtíðinni.
Talið er að forráðamenn UFC séu að leita af stærri vettvangi fyrir UFC og Bernabeu sé fullkomið svið fyrir bardaga.
Talsmaður Real Madrid hefur svarað spurningum þess efnis og ku félagið vera spennt fyrir hugmyndinni.
Ef þetta nær í gegn, verður bardagakvöld á milli maí og júlí, eða á meðan spænski boltinn er í sumarfríi.
McGregor hefur oft nefnt að hann væri til í að berjast nær heimili sínu en hann er írskur. Það er því fyrsti kostur hjá honum að berjast í Írlandi en gangi það ekki eftir, þykir Spánn ansi líklegt.
Athugasemdir