Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. apríl 2017 22:10
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bikarinn: Magni áfram eftir öruggan sigur
Magni er komið í 32-liða úrslit
Magni er komið í 32-liða úrslit
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Nökkvi 1 - 5 Magni
0-1 Fannar Freyr Gíslason ('34)
0-2 Victor Da Costa ('38)
0-3 Victor Da Costa ('62)
0-4 Bergvin Jóhannsson ('81)
1-4 Ingvar Már Gíslason ('83)
1-5 Bergvin Jóhannsson ('87)

Magni heimsótti Nökkva í fyrsta leik 2. umferðar Borgunarbikars karla í kvöld.

Fannar Freyr Gíslason kom Magna yfir á 34. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Victor Da Costa forystu Magna.

Costa bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Magna á 62. mínútu og fjórða markið kom á 81. mínútu en það skoraði Bergvin Jóhannsson.

Ingvar Már Gíslason minnkaði muninn fyrir Nökkva á 83. mínútu en það var Magni sem skoraði síðasta mark leiksins og var það Bergvin sem bætti við sínu öðru marki.

Lokatölur 5-1 og Magni því komið áfram í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner