Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. maí 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bellerín ánægður með áhuga Barcelona
Hector Bellerin í baráttu við Sergio Aguero.
Hector Bellerin í baráttu við Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Hector Bellerin, leikmaður Arsenal segist vara ánægður með áhuga frá uppeldisfélagi sínu, Barcelona en hann ætlar að einbeita sér að landsliðinu í bili.

Hinn 21 árs Spánverji fór frá Barcelona árið 2011 en hann hefur verið orðaður við endurkomu til spænska risans eftir góð ár í Englandi.

„Ég pæli ekki í þessu, ég er að einbeita mér að landsliðinu. Ég er með umboðsmann til að huga að svona hlutum. Þú ert alltaf orðaður við lið þegar þú átt góða leiktíð."

„Ég er samt sem áður ánægður með að svona stórt lið síni mér áhuga. Það er alltaf gott," sagði Bellerin.
Athugasemdir
banner
banner
banner