Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. maí 2017 15:25
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið ÍBV og ÍA: Skagamenn gera eina breytingu
Mynd: Raggi Óla
ÍBV tekur á móti stigalausum Skagamönnum í 5. umferð Pepsi-deildar karla í dag.

Vörn Skagamanna hefur verið agaleg það sem af er tímabils og búin að hleypa 13 mörkum inn í aðeins 4 leikjum.

Skagamenn gera aðeins eina breytingu á liðinu sem tapaði 3-2 fyrir Grindavík í síðustu umferð, en það er Rashid Yussuf sem kemur inn fyrir Aron Inga Kristinsson.

Eyjamenn, sem eru búnir að halda hreinu tvo deildarleiki í röð, gera engar breytingar á liðinu sem vann Víking í Ólafsvík með þremur mörkum gegn engu.

Hér er hægt að fylgjast með beinni textalýsingu frá Eyjum.

Byrjunarlið ÍBV:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
3. Matt Garner
4. Hafsteinn Briem
5. Avni Pepa
6. Pablo Punyed
11. Sindri Snær Magnússon
12. Jónas Þór Næs
16. Viktor Adebahr
17. Sigurður Grétar Benónýsson
18. Alvaro Montejo
26. Felix Örn Friðriksson

Byrjunarlið ÍA:
33. Ingvar Þór Kale (m)
4. Arnór Snær Guðmundsson
5. Robert Menzel
6. Albert Hafsteinsson
9. Garðar Gunnlaugsson
11. Arnar Már Guðjónsson
16. Þórður Þorsteinn Þórðarson
18. Rashid Yussuff
20. Gylfi Veigar Gylfason
22. Steinar Þorsteinsson
26. Hilmar Halldórsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner