Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 27. júní 2016 20:32
Arnar Geir Halldórsson
Stór fatakeðja vill fá Birki Bjarna sem módel
Icelandair
Myndarlegur
Myndarlegur
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Það er óhætt að segja að íslenska karlalandsliðið sé að vekja heimsathygli um þessar mundir á meðan leik Íslands og Englands stendur.

Það er klárt mál að atvinnutilboðum mun rigna yfir landsliðsmennina okkur að loknu móti en ætla má að þau tilboð verði flest frá knattspyrnufélögum.

Það eru þó ekki bara knattspyrnufélög sem sýna strákunum okkar áhuga því ASOS fatakeðjan virðist vilja fá Birki Bjarnason til starfa sem fyrirsæta ef marka má Twitter aðgang fatarisans.

„Hey @bbjarnason8 þegar þú lýkur keppni á EM vertu í sambandi við okkur. Við gætum notað þig í ASOS catwalk," er það sem segir í atvinnutilboðinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner