Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   mið 27. júlí 2016 23:38
Ívan Guðjón Baldursson
Atli Gunnar: Þetta var mjög, mjög, mjög sárt
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar
Atli Gunnar Guðmundsson átti góðan leik þegar Huginn náði frábæru jafntefli á útivelli gegn toppbaráttuliði Grindavíkur í Inkasso-deildinni fyrr í kvöld.

Leikmenn Hugins héldu 2-1 forystu allt þar til í blálokin þegar Alexander Veigar Þórarinsson jafnaði með skallamarki.

„Þetta var mjög erfiður leikur og menn gáfu sig alla í þetta, enda uppskárum við eitt stig sem hefðu átt að vera þrjú," sagði sársvekktur Atli að leikslokum.

„Við vörðumst vel og vorum ekki með neitt rugl. Svo fáum við þetta óþvegið í andlitið og það var mjög, mjög, mjög sárt.

„Mig langar að sökkva ofan í jörðina, líka því að ég veit alveg minn þátt í þessu marki. Ég á að gera betur, ég veit það og það gerir þetta ennþá verra. En eins og ég segi þá tökum við stig á mjög erfiðum útivelli, það er grátlegt samt að missa þetta svona niður."


Atli Gunnar varði vítaspyrnu frá Andra Rúnari Bjarnasyni í síðari hálfleik, auk níu annarra skota sem hann fékk á sig í leiknum. Skotin sem komu að marki Hugins í leiknum voru rúmlega 30.

„Ég ætla ekki að vera að ljúga að þér, ég ákvað bara horn, fór bara í það og hann skaut í það. Ég er ekki alveg nógu góður í að lesa vítaspyrnur," sagði Atli Gunnar um vítavörsluna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner