Þór 2 - 0 Þróttur R.
1-0 Aron Kristófer Lárusson ('41)
2-0 Orri Freyr Hjaltalín ('71)
1-0 Aron Kristófer Lárusson ('41)
2-0 Orri Freyr Hjaltalín ('71)
Þróttur Reykjavík heimsótti Þórsara á Akureyri í Inkasso-deildinni í kvöld en bæði lið eru í efri hlutanum og því mikilvægur leikur.
Með sigri hefði Þróttur getað komist upp að hlið Fylkis á toppi deildarinnar en Þór gat með sigri nálgast toppliðin og blandað sér fyrir alvöru í toppbaráttunni.
Undir lok fyrri hálfleik komust heimamenn í Þór yfir með marki frá Aroni Kristóferi Lárussyni.
Um miðbik seinni hálfleik tvöfaldaði Orri Freyr Hjaltalín forystu Þórsara og þar við sat. 2-0 sigur Þórs staðreynd.
Þróttur er enn í 3. sæti deildarinnar með 27 stig en Þór er komið í 4. sætið með 25 stig.
Athugasemdir