Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. apríl 2017 20:51
Dagur Lárusson
Pepsi kvenna: ÍBV sigraði KR
Sterkur sigur hjá ÍBV
Sterkur sigur hjá ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 1-0 KR
1-0 Cloé Lacasse (48')
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn

Pepsi deild kvenna hélt áfram að rúlla í dag með einum leik sem fór fram á Hásteinsvelli. Þar mættust ÍBV og KR.

Fyrri hálfleikur var heldur bragðdaufur og hvorugu liðinu tókst að skora.

Það tók hinsvegar ekki langan tíma fyrir heimamenna að skora í seinni hálfleik, en aðeins þremur mínútum eftir að dómarinn flautaði aftur til leiks var Cloé Lacasse búin að skora og koma ÍBV yfir.

KR-ingar reyndu eins og þeir gátu að jafna en það tókst ekki og því hirtu ÍBV stigin þrjú, sterkur sigur fyrir Eyjakonur.
Athugasemdir
banner
banner
banner