Heimild: BBC
Fastlega er búst við því að varnarmaðurinn Calum Chambers gangi formlega í raðir Arsenal frá Southampton í dag.
Þessi 19 ára gamli hægri bakvörður lék 21 leiki með Southampton í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
BBC greinir frá því að Arsenal greiði 16 milljónir fyrir þennan unga Englendinga sem þegar hefur gengist undir læknisskoðun.
Það hefur mikið kvarnast úr liði Southampton í sumar. Chambers fylgir þeim Rickie Lambert, Adam Lallana og Luke Shaw sem allir hafa söðlað um í sumar.
Athugasemdir