Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 28. júlí 2014 09:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Jay Rodriguez til Liverpool?
Powerade
Verður Jay Rodriguez fjórði leikmaðurinn sem Liverpool fær frá Southampton í sumar.
Verður Jay Rodriguez fjórði leikmaðurinn sem Liverpool fær frá Southampton í sumar.
Mynd: Getty Images
Iker Casillas er orðaður við Arsenal.
Iker Casillas er orðaður við Arsenal.
Mynd: Getty Images
Það er nóg af slúðri í enska boltanum þessa dagana enda eru einungis tæpar þrjár vikur í að flautað verði til leiks í ensku úrvalsdeildinni.



Liverpool hefur spurst fyrir um Jay Rodriguez framherja Southampton eftir að Loic Remy féll á læknisskoðun. (Talksport)

Manchester United hefur fengið þau skilaboð að félagið þurfi að borga 79 milljónir punda til að krækja í Kevin Strootman miðjumann Roma, þrátt fyrir að hann sé frá keppni vegna hnémeiðsla. (Sun)

Jan Vertonghen segist ætla að gera nýjan samning við Tottenham þrátt fyrir áhuga frá Barcelona. (Daily Mirror)

Angel Di Maria, leikmaður Real Madrid, vill fara til Manchester United en hann vill ekki fara til PSG á láni. (Daily Star)

Di Maria gæti farið til PSG á 51 milljón punda. (Marca)

Gus Poyet, stjóri Sunderland, er við það að krækja í Cristian Rodriguez kantmann Atletico Madrid. (Daily Telegraph)

Inter ætlar að reyna að krækja í Dani Osvaldo frá Southampton. (Daily Mail)

Ronald Koeman, stjóri Southampton, vill fá Leroy Fer miðjumann Norwich en QPR hefur einnig áhuga. (Sun)

Juventus ætlar að bjóða í Romelu Lukaku framherja Chelsea en Real Madrid vill líka fá Belgann í sínar raðir. (AS)

Barcelona hefur áhuga á Daniel Agger varnarmanni Liverpool. (Le Figaro)

Arsenal hefur boðið Iker Casillas markverði Real Madrid fimm ára samning. (Bild)

Mark Wright, fyrrum varnarmaður Liverpool, setur spurningamerki við að félagið borgi 20 milljónir punda fyrir Dejan Lovren varnarmann Southampton. (Talksport)

Glenn Hoddle verður líklega næsti aðstoðarmaður Harry Redknapp hjá QPR. (Daily Star)
Athugasemdir
banner