Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. júlí 2015 16:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool að lána Wisdom til Norwich
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur samþykkt að lána varnarmanninn Andre Wisdom til Norwich.

Hinn 22 ára gamli Wisdom skrifaði undir nýjan fimm ára samning hjá Liverpool í maí.


Wisdom var á láni hjá WBA á síðasta tímabili og hann er nú á leið aftur á lán.

Talið er að Norwich muni greiða 1,25 milljón punda fyrir lánssamninginn.

Wisdom mun reyna að hjálpa nýliðunum í ensku úrvalsdeildinni í baráttunni sem er framundan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner