Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 28. ágúst 2015 22:10
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: FC Bayern 
Hojbjerg lánaður til Schalke (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Danska vonarstjarnan, Pierre-Emile Hojbjerg, hefur verið lánaður frá Bayern Munchen til Schalke 04.

Hojbjerg er yngsti leikmaðurinn í sögunni til að spila deildarleik fyrir Bayern Munchen en hann var aðeins 17 ára gamall þegar hann fékk fyrst tækifæri með aðalliðinu.

Hojbjerg, sem er tvítugur miðjumaður, var lánaður til Augsburg um miðbik síðustu leiktíðar og þótti standa sig vel með liðinu í Bundesligunni.

Hann hefur nú gert eins árs lánssamning við Schalke sem lenti í 6.sæti Bundesligunnar á síðustu leiktíð.

Athugasemdir
banner
banner