Einungis einn stuðningsmaður Gefle mætti á leik liðsins gegn Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í vikunni.
Ferðalagið í leikinn fram og til baka hljóðaði upp á rúma 1100 kílómetra og stuðningsmenn Gefle vildu ekki leggja það á sig.
Ferðalagið í leikinn fram og til baka hljóðaði upp á rúma 1100 kílómetra og stuðningsmenn Gefle vildu ekki leggja það á sig.
Gefle vann mikilvægan útisigur í fallbaráttunni og eftir leikinn fögnuðu leikmenn liðsins með eina stuðningsmanninum sem mætti eins og sjá má hér að neðan.
Gefle er í 15. sæti í sænsku úrvalsdeildinni, tveimur stigum frá Helsingborg þegar tvær umferðir eru eftir. Þessi lið eru að berjast við að bjarga sér frá falli en 14. sætið fer í umspil um laust sæti. 15. sætið fellur hins vegar ásamt Falkenberg sem er í langneðsta sætinu.
Hér að neðan má sjá leikmennina fagna með stuðningsmanninum á miðvikudag.
Les joueurs du Gefle IF célèbrent leur victoire face au Kalmar FF avec le seul supporter qui a fait le déplacement. pic.twitter.com/HOtsf1a3oP
— Vines Foot (@vinesfoot) October 27, 2016
Athugasemdir