Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. nóvember 2015 17:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Barcelona fór létt með Sociedad
Leikmenn Barcelona fagna hér
Leikmenn Barcelona fagna hér
Mynd: Getty Images
Barcelona 4 - 0 Real Sociedad
1-0 Neymar ('22 )
2-0 Luis Suarez ('41 )
3-0 Neymar ('53 )
4-0 Lionel Andres Messi ('90 )

Sjóðheitir Börsungar tóku á móti Real Sociedad í fyrsta leik dagsins í La Liga, en leiknum var að ljúka.

Neymar braut ísinn fyrir Barcelona um miðja fyrri hálfleikinn og Luis Suarez bætti svo við marki áður en fyrri hálfleik lauk.

Neymar var svo aftur á ferðinni í byrjun seinni hálfleiks og hver annar en Lionel Messi batt svo lokahnútinn á þennan leik fyrir Barca með marki í uppbótartíma

Eftir sigurinn er Barcelona á toppnum með 33 stig, en Real Sociedad er með tólf stig í 14. sæti.
Athugasemdir
banner
banner