Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   sun 29. maí 2016 10:00
Magnús Már Einarsson
Gulli Jóns: Þekkjum Gary mjög vel
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta verður hörkuleikur. Bæði lið eru í svipaðri stöðu í deildinni og það er mikið undir. Mótið er jafnt eins og staðan er núna, það er stutt niður en það er líka stutt upp. Það verður hart barist," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, um leik liðsins gegn Víkingi R. í Pepsi-deildinni í kvöld.

Gary Martin er í framlínu Víkings en Skagamenn þekkja hann vel frá fyrri tíð.

„Hann hóf sinn feril á Akranesi og gerði mjög vel hjá okkur. Við þekkjum hann mjög vel. Við höfum marg oft mætt honum og margir strákar voru með honum í Skagaliðinu á sínum tíma."

Iain Williamson má ekki spila með ÍA í kvöld þar sem hann er á láni hjá ÍA frá Víkingi R. Þá eru meiðsli í herbúðum Skagamanna.

„Arnar Már (Guðjónsson) er í basli í meiðslum. Ármann (Smári Björnsson) var ekki með í síðasta bikarleik en við vonum að hann verði klár," sagði Gunnlaugur.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner