Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   þri 29. júlí 2014 22:21
Karitas Þórarinsdóttir
Hlynur: Ætlum að anda í hálsmálið á Stjörnunni
Hlynur Svan Eiríksson.
Hlynur Svan Eiríksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við gerðum fjögur mörk í seinni hálfleik en leikurinn er í 90 mínútur og það var ýmislegt sem er mjög jákvætt í fyrri hálfleik," sagði Hlynur Svan Eiríksson þjálfari Breiðabliks eftir 4-0 sigur á Fylki í kvöld en eftir dapran fyrri hálfleik þar sem ekkert var skorað fóru Blikar í gang í þeim síðari og skoruðu fjögur.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Fylkir

,,við vorum aðeins of langt frá miðjumönnunum þeirra í fyrri hálfleik og ekki að vinna varnarvinnuna nægilega vel. En það lagaðist í seinni hálfleik. Svo vorum við að sækja á rétta staði á þær og skapa okkur fullt af færum og gerum fjögur frábær mörk."

Hlynur setti þær Ingibjörgu Sigurðardóttur og Ástu Eir Árnadóttur inná í hálfleik og við það breyttist liðið.

,,Það heppnaðist sem við vorum að gera svo ég er mjög ánægður með það," sagði Hlynur en Fjolla Shala sá rauða spjaldið á 68. mínútu, hvað fannst Hlyni um dóminn hjá Einari Inga dómara?

,,Mér fannst þetta ekki rautt spjald en ég er náttúrulega bara litaður af mínu liði. Mér fannst þetta vera klafs, þær hlupu saman einhvern veginn og þá var hún rekin útaf."

Breiðablik fór við sigurinn í 2. sætið í deildinni og á svo næst leik gegn FH á föstudaginn í næstu viku. Liðið er 8 stigum frá toppliði Stjörnunnar.

,,Við ætluðum okkur að taka 2. sætið eftir leikinn í dag og við ætlum að vinna næsta leik líka. Svo sjáum við hvað Stjarnan gerir, við ætlum að anda í hálsmálið á Stjörnunni ef það er hægt."
Athugasemdir
banner
banner
banner