Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfoss, var að vonum svekktur eftir 2-1 tap sinna stúlkna gegn Stjörnunni í úrslitum Borgunarbikarsins á Laugardalsvelli í dag.
Selfoss komst yfir í seinni hálfleik og virtist ætla að sigla sigrinum heim en Stjörnustúlkur skoruðu þá tvö mörk og tryggðu sér bikarinn.
Selfoss komst yfir í seinni hálfleik og virtist ætla að sigla sigrinum heim en Stjörnustúlkur skoruðu þá tvö mörk og tryggðu sér bikarinn.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 1 Selfoss
„Þetta var bara góður leikur og mikil barátta, þær bara stálu þessu af okkur. Mér fannst við vera mun betra liðið í fyrri hálfleik og sýna mikil gæði. En svo þegar við komumst yfir sýna þær kannski reynslu og gæði og við reynsluleysi," sagði Gunnar við Fótbolta.net eftir leikinn.
Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir