Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 29. september 2016 16:30
Magnús Már Einarsson
Anelka styður Stóra Sam: Við elskum þig
Anelka styður Stóra Sam.
Anelka styður Stóra Sam.
Mynd: Getty Images
Nicolas Anelka hefur lýst yfir stuðningi sínum við Sam Allardyce eftir að sá síðarnefndi hætti sem þjálfari enska landsliðsins.


Anelka spilaði á sínum tíma undir stjórn Stóra Sam hjá Bolton Wanderers.

Sam hætti í vikunni sem landsliðsþjálfari eftir uppljóstranir hjá The Daily Telegraph.

„Ég er svo leiður yfir þessum fréttum stóru Sam! Þú varst rétti maðurinn fyrir England og ég hef ennþá trú á að þú sért það!" sagði Anelka.

„Það skiptir ekki máli hvað þú gerðir eða sagðir, við gerum öll mistök ...mikilvægast er að við elskum þig! Takk fyrir allt."
Athugasemdir
banner