Heimild: Daily Mail
Andrea Pirlo, miðjumaður Juventus hefur vakið athygli í MLS deildinni í Bandaríkjunum en hann er orðaður þar við félög á borð við New York City, en þar spilar meðal annars David Villa og Frank Lampard, sem hefur verið í láni hjá Manchester City á leiktíðinni.
Ítalíumeistararnir eru taldir vilja leyfa Pirlo að fara en þeir leita því að arftaka hans.
Talið er að Juventus muni gera tilboð í Oscar, miðjumann Chelsea, sem kom til liðsins árið 2012 á 19 milljónir punda.
Oscar hefur þó sjálfur sagt að hann sé ánægður á Stamford Bridge og því ekki ólíklegt að hann verði þar áfram.
Athugasemdir