Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. ágúst 2014 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Jurgen Klopp: Margt fór úrskeiðis
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund í þýsku deildinni, var allt annað en sáttur með frammistöðu liðsins gegn Augsburg í dag.

Dortmund marði sigur á Augsburg með þremur mörkum gegn tveimur en þrátt fyrir að Dortmund hafi komist þremur mörkum yfir þá missti liðið einbeitingu undir lok leiks.

Liðið fékk á sig tvö mörk undir lok leiksins en Klopp var allt annað en sáttur með sína menn.

,,Það er margt sem fór úrskeiðis. Úrslitin hjálpa okkur eftir ömurleg úrslit í fyrstu umferðinni. Þetta er hinsvegar bara byrjun tímabilsins," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner