Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. september 2016 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Vela tryggði Real Sociedad sigur gegn Betis
Carlos Vela var á skotskónum í kvöld
Carlos Vela var á skotskónum í kvöld
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 1 - 0 Betis
1-0 Carlos Vela ('63 )

Það var einn leikur spilaður í spænsku úrvalsdeildinni, La Liga í kvöld. Real Sociedad fékk þá Real Betis í heimsókn, en þetta var fyrsti leikurinn í sjöundu umferðinni.

Betis var með einu stigi meira fyrir leikinn og því vildi Sociedad eflaust taka öll þrjú stigin í kvöld. Þeir reyndar gerðu vel og stóðu uppi sem sigurvegarar á Anoeta-vellinum.

Það var aðeins eitt mark skorað í kvöld á Spáni og það gerði Mexíkóinn Carlos Vela eftir rétt tæplega klukkutíma leik, nánar tiltekið á 63. mínútu.

Það reyndist sigurmarkið og lokatölur 1-0 fyrir Real Sociedad og kærkominn sigur þeirra niðurstaðan í þessum leik. Þeir eru nú með tíu stig í níunda sæti á meðan Betis-menn eru með tveimur stigum minn í tveimur sætum fyrir neðan.
Athugasemdir
banner
banner