Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. nóvember 2015 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: 90 Min 
Juventus á meðal félaga sem hafa áhuga á Andrej Kramaric
Kramaric hér í leik með Leicester
Kramaric hér í leik með Leicester
Mynd: Getty Images
Juventus er á meðal fjölda félaga í Serie A sem hefur áhuga á króatíska sóknarmanninum, Andrej Kramaric, en það er haft eftir Sky Italia.

Kramaric samdi við Leicester í janúar síðastliðnum, en hefur ekki fengið mikið að spreyta sig vegna ótrúlegs gengi Jamie Vardy.

Vardy hefur skoraði í ellefu deildarleikjum í röð, en Kramaric hefur aðeins spilað tólf mínútur á tímabilinu og varla komist á bekkinn.

Af þessum sökum hafa lið á Ítalíu borið kvíurnar í Kramaric, en Juventus, Inter Milan og AC Milan eru á meðal liða sem hafa áhuga á sóknarmanninum.

Fréttir á Ítalíu halda því þá fram að samband hafi nú þegar náðst á milli ítölsku félaganna og umboðsmanns Kramaric, en Kramaric er talinn viljugur á vistaskipti í janúar eftir vandræðin á Englandi.
Athugasemdir
banner