Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. nóvember 2017 17:45
Magnús Már Einarsson
Alfreð Már Hjaltalín í ÍBV (Staðfest) - Shahab framlengir
Alfreð Már Hjaltalín.
Alfreð Már Hjaltalín.
Mynd: ÍBV
Shahab Zahedi Tabar.
Shahab Zahedi Tabar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur komist að samkomulagi við Víking Ó. um kaup á Alfreð Má Hjaltalín. Alfreð hefur gert þriggja ára samning við ÍBV. Alfreð hafði tilkynnt í haust að hann myndi fara frá Víkingi Ólafsvík eftir fall liðsins úr Pepsi-deildinni.

Alfreð er fæddur og uppalinn Hólmari. Hann æfði yngri flokkana með Snæfell til ársins 2009, þegar hann tók uppá því sumarið 2009 að fara í annan flokk KR.

Daglega ferðaðist hann á æfingar frá Stykkishólmi til Reykjavíkur.
Um haustið gekk hann til liðs við Víking Ó. Þar hefur hann leikið 74 leiki í 1. deild karla og 63 leiki í Pepsi-deild karla.

„Ljóst er að um gríðarlega metnaðarfullan, dugmikinn og eljusaman leikmann er að ræða, sem kemur úr sambærilegu umhverfi. Þar sem harka og barátta eru allsráðandi," segir í fréttatilkynningu frá ÍBV.

Alfreð Már er fljótur kantmaður eða bakvörður og mun því nýtast liðinu sem góður liðstyrkur á komandi árum.

ÍBV hefur einnig framlengt samning sinn við sóknarmanninn Shahab Zahedi Tabar sem skoraði fjögur mörk í níu leikjum eftir að hann kom til ÍBV í júlí.

„Hann kom vel inn í lið ÍBV í fyrra, tók smá tíma að aðlagast en gerði svo varnarmönnum annara liða lífið leitt. Ekki þarf að fjölyrða um það hversu gríðarlega mikill liðstyrkur það er fyrir ÍBV að halda leikmanni eins og Shahab næstu 3 árin," segir í tilkynningu frá ÍBV.

„Ljóst er að stefna félagsins er að setja saman samkeppnishæft lið til að keppa á öllum vígstöðum á næsta ári."

Komnir:
Alfreð Már Hjaltalín frá Víkingi Ó.
Ágúst Leó Björnsson frá Stjörnunni
Dagur Austmann Hilmarsson frá Stjörnunni

Farnir:
Alvaro Montejo Calleja í Þór
David Atkinson til Englands
Hafsteinn Briem
Jónas Þór Næs
Mikkel Maigaard Jakobsen
Pablo Punyed í KR
Renato Punyed
Athugasemdir
banner
banner
banner