Í síðustu viku skellti ég mér ásamt fjölskyldu minni á leik Íslands og Noregs á EM2013 í Kalmar í Svíþjóð. Við vorum öll afar spennt að fara sjá íslenska landsliðið spila og ekki skemmdi fyrir að það var sól og blíða í Kalmar þennan fallega fimmtudag.
Meira »
Í síðustu viku skellti ég mér ásamt fjölskyldu minni á leik Íslands og Noregs á EM2013 í Kalmar í Svíþjóð. Við vorum öll afar spennt að fara sjá íslenska landsliðið spila og ekki skemmdi fyrir að það var sól og blíða í Kalmar þennan fallega fimmtudag.
Meira »
Eftir rúmlega hálftíma í bikarleik ÍBV og KR á sunnudaginn lentu þeir í samstuði Aaron Spear hjá ÍBV og Gunnar Þór Gunnarsson hjá KR. Í kjölfarið gengur Gunnar ógnandi fast upp að Aaron sem ber fyrir sig hendur með flötum lófum og ýtir á móti. Gunnar kastar sér niður eins og hann hefði orðið fyrir strætisvagni eða verið skotinn í brjóstið. Brostu allir viðstaddir að þessum tilburðum – líka KR-ingar. Allir aðrir en Magnús Þórisson, dómari leiksins. Hann kom hlaupandi yfir hálfan völlinn til þess að veifa rauðu spjaldi framan í Aaron Spear! Viðstaddir litu í forundran hver á annan – líka KR-ingar.
Meira »
Núna um miðjan júní var tekinn í notkun glæsilegur gerfigrasvöllur á KA svæðinu. Tel ég að sú stund verði talin ein af fjórum stærstu í sögu KA, hvað framkvæmdir varða. Vil ég hér með leyfa mér að þakka L-lista fólki og öðrum bæjarfulltrúum, sem studdu þetta.
Meira »
Íslandsmótið í yngri flokkum er farið af stað og eflaust margir farnir að hlakka verulega til sumarsins. Við þjálfarar í okkar félagi óskuðum sérstaklega eftir því við KSÍ á vordögum að við fengjum að skrá A-og C-lið til leiks í Íslandsmótið í 5.fl. kvk. Ástæða þess að við vildum ekki skrá lið okkar sem B-lið er sú að mikið er af nýjum stúlkum í fámennum hópi og hafa þær að undanförnu oftast fengið slæma útreið í leikjum B-liða s.s. í Faxaflóamóti og æfingaleikjum (erum örugglega ekki eina liðið í þessari stöðu).
Með þessari ósk okkar vonuðumst við eftir því að fá fleiri jafningjaleiki sem eflaust myndi auka líkurnar á að viðhalda áhuga og efla framfarir okkar stelpna. Meira »
Ánægjulegt að fá Fylki í lið með okkur til að vekja athygli á ferðakostnaði íþróttafélaga. Við höfum barist fyrir því að Alþingi standi við gefin fyrirheit um framlög í ferðasjóð íþróttahreyfingarinnar og fögnum hverjum þeim sem leggst á árarnar með okkur.
Fótbolti.net greindi frá því í víkunni að leikmenn karlaliðs Fylkis í knattspyrnu þyrftu sjálfir að borga hluta af fargjaldinu bikarleik gegn Sindra á Höfn. Valið stóð á milli tíu tíma rútuferðar fyrir 335 þúsund eða skottúrs með flugi á 690 þúsund. Meira »
Hvað er ofþjálfun? Ofþjálfun er líkamlegt ástand sem á sér stað þegar magn og álag æfinga einstaklings fer umfram þeirra “recovery capacity” sem þýðir að líkaminn nær ekki þeirri endurheimt sem hann þarf á að halda. Það er hætta á framförum í sinni íþrótt og miklar líkur eru á því að þú byrjir að missa styrk . Ofþjálfun er algengt vandamál hjá þeim sem að stunda lyftingar, en það getur einnig komið fram hjá hlaupurum og öðrum íþróttamönnum. Samkvæmt skilgreiningu eru ofþjálfaðir íþróttamenn ekki að framkvæma á “venjulegi stigi” eða “venjulegu leveli” Hins vegar í flestum tilfellum eru engin skýr lífeðlisfræðileg skýring á slakri frammistöðu. Ofþjálfaðir íþróttamenn virðast yfirleitt vera meira eða minna eðlilegir ef tekið er mið af lífeðlisfræðilegum þáttum í tengslum við árangur (t.d. glycogen stigum, laktat stigum og VO2max sem er eitt helsta mælitæki í sterkustu deildum heims í knattspyrnu).
Meira »
Kolbrún Bergþórsdóttir vakti heldur betur upp umræðu á kaffistofum margra landsmanna þegar hún gagnrýndi einlæga aðdáendur Alex Fergusson í grein sinni: ,,Gamall maður hættir í vinnu“ sem birtist í Morgunblaðinu 13. maí s.l. Í lok greinarinnar bætir hún við að knattspyrna sé ,,heldur ómerkilegur leikur þeirra sem ekki nenna að lesa bækur“. Nú veit ég ekki hvort Kolbrún hefur horft á knattspyrnuleik eða íþróttaviðburð einhvern tímann á ævinni, ég geri samt fastlega ráð fyrir því. Því þegar Kolbrún segir að knattspyrna sé ómerkilegur leikur þá er hún í raun að segja að allar hópíþróttir séu ómerkilegar og fyrir alla þá sem hafa ekki ,,gáfur“ til þess að lesa bækur. Mig langar til þess að benda henni á að fyrir mörgum er þessi yndislega íþrótt list, já list.
Meira »
Það verður seint sagt að hinn margumtalaða vorbrag hafi verið að finna á spilamennsku Breiðabliks í leiknum gegn Þór síðastliðinn sunnudag. Blikum hefur verið spáð toppbaráttu og miðað við frammistöðu liðsins á sunnudaginn eru þær spár á rökum reistar, þótt það verði að taka með í reikninginn að andstæðingurinn var ekki sá sterkasti.
Meira »
Kristine Lilly er ein allra besta knattspyrnukona allra tíma. Kristine var bandarískur landsliðsmaður í 24 ár og er sá landsliðsmaður í veröldinni, karl eða kona sem á flesta landsleiki að baki eða 352.
Meira »

