Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
KDA KDA
 
þri 21.feb 2017 16:30 Magnús Þór Jónsson
Nóg um Gylfa og Margréti - hvar eru næstu Aron og Edda? Fótbolti er dásamleg íþrótt. 11 einstaklingar í flottu formi dásamlega hæfileikaríkir senda á milli sín leðurbolta sem verður stöðugt léttari og meðfærilegri. Stuttar og langar sendingar um allt, hratt knattrak hægri vinstri og nú gera menn þreföldu skærin á ferðinni töluvert hraðar en hraðklipparinn Denilson náði að gera sín hefðbundnu einföldu á sínum tíma með Real Betis og brasilíska landsliðinu. Mörk úr öllum áttum og alla unga knattspyrnuiðkendur dreymir um að verða gaurinn eða gellan sem skrúfa boltann í markvinkilinn og allir fagna. Meira »
lau 09.júl 2016 12:05 Magnús Þór Jónsson
Höldum ævintýrinu áfram Í dag eru liðnir 5 dagar síðan "Strákarnir okkar" lentu á skerinu okkar góða og keyrðu í opnum strætó niður á Arnarhól þar sem þeim var fagnað af tugum þúsunda Íslendinga sem þökkuðu þeim á faglegan hátt fyrir skemmtunina sem þeir veittu okkur samlöndum sínum í Frakklandi.



Að sjálfsögðu vorum við öll og erum rífandi stolt af frammistöðu liðsins sem hefur varpað nýju ljósi á íslenska knattspyrnu og í raun allt okkar samfélag.  Eins og Heimir lýsti svo réttilega þá hefur árangurinn breytt ásjónu íþróttarinnar á ÍSlandi og í því felast bæði tækifæri og ákveðnar ógnir.



Það er auðvitað vert að skoða - en það langar mig ekki að gera núna.



Mig langar meira til að skora á okkur öll að halda ævintýrinu áfram! Meira »
mið 23.sep 2015 18:00 Magnús Þór Jónsson
Uppgjör 1. deildar 2015 Viðburðaríku sumri er lokið í 1.deildinni og því ekki úr vegi að rúlla aðeins yfir lokastöðuna og hvernig sumarið varð hjá liðunum tólf sem í henni tóku þátt.
Fótbolti.net hefur áður farið yfir hvernig spáin um deildina í þessari frétt hérna en mig langar aðeins að skutla minni sýn á þessa deild eftir að hafa náð að horfa á býsna marga leiki þar í sumar. Meira »
mán 16.sep 2013 15:15 Magnús Þór Jónsson
Mótaniðurröðun og íslenskt veðurfar Ég var einn af þeim Snæfellsbæingum sem ákvað í gær að henda mér á Vesturlandsslaginn í Pepsi deildinni. Leik ÍA og Víkings á Akranesi.

Enda leikur sem skiptir nú ansi miklu máli í fallbaráttu PEPSI-deildar sumarið 2013, leikur sem mínir menn í Víkingi ætluðu sér að vinna. Meira »
fim 05.júl 2012 09:44 Magnús Þór Jónsson
Peningamyllan fer í hringi Vorið 1995 fór ég í æfingaferð með félögum mínum í KS og var ferðinni heitið til stórborgarinnar Glasgow. Meira »
sun 13.maí 2012 10:55
Sumarið er tíminn Í gær byrjaði boltinn að rúlla í 1.deildinni sem er aðaldeildin í mínum heimkynnum á Snæfellsnesi. Víkingarnir tóku á móti Fjölni og niðurstaðan var sanngjarnt jafntefli í leik sem bæði lið gátu þó kvartað undan að hafa ekki unnið. Meira »
fim 29.sep 2011 14:15 Magnús Þór Jónsson
Óli Jó í víking í síðasta sinn! Á undanförnum vikum hefur verið farið mikinn í umræðunni um íslenska landsliðið og sennilega helst um þjálfarann. Mig langar aðeins að tja mig um það málefni í tilefni þess að Ólafur Jóhannesson er á leið í sitt síðasta verkefni með A-landsliðinu - í bili allavega. Meira »
sun 26.jún 2011 09:26
Flakk um víðan völl - karlar Nú eru línur aðeins farnar að skýrast í íslenskum fótbolta og kannski ekki úr vegi aðeins að líta á það sem er að baki áður en rýnt er í næstu skref. Karlapistillinn fyrst og svo stelpurnar á næstunni. Meira »
sun 24.apr 2011 13:52
Vika í mót Þá er vika í upphaf fótboltans á Íslandi, efsta deildin og bikarkeppnin að byrja eftir viku og þá hefst fjörið. Meira »
fim 31.mar 2011 14:22 Magnús Þór Jónsson
Kominn tími á þjálfarastressið? Mánaðarmótin mars-apríl. Þetta árið verður það helsta að frétta hjá mér að ég fer að dæma leik um helgina, en svoleiðis var það nú ekki í langan tíma. Meira »