Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25113 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.07.2025, 17:19

Dagbjartur Búi lánaður í Þór (Staðfest)

Dabjartur Búi Davíðsson er genginn í raðir Þórs á láni frá grönnunum í KA. Hann er fæddur árið 2006 og lék sína fyrstu leiki með KA á síðasta tímabili þegar hann lék fjóra leiki með liðinu í Bestu deildinni eftir skiptingu. Á þessu tímabili hefur hann einungis komið við sögu í einum deildarleik og einum bikarleik með KA.

FRÉTTIR17.07.2025, 15:30

Noa Lang til Napoli (Staðfest)

Noa Lang er formlega orðinn leikmaður Napoli en hann hefur verið keyptur frá PSV Eindhoven. Hollenski landsliðsmaðurinn gekkst undir læknisskoðun á þriðjudag. Hann stóðs þá skoðun með miklum sóma og hefur skrifað undir fimm ára samning við Ítalíumeistarana.

FRÉTTIR17.07.2025, 14:57

Jón Páll aðstoðar Einar Guðna með Víking (Staðfest)

Jón Páll Pálmason hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Einars Guðnasonar hjá meistaraflokki kvenna hjá Víkingi. Jón er uppalinn í FH og steig sín fyrstu skref í þjálfun hjá yngri flokkum félagsins. Einnig hefur hann þjálfað kvennalið Fylkis, karlalið Víkings Ó og Hattar. Í Noregi þjálfaði hann liðið Klepp IL í efstu deild kvenna og eftir þriggja ára dvöl þar færði hann sig til karlaliðs Stord. Jón hefur einnig starfað í akademíu hjá Total Football Club í Texas.

FRÉTTIR17.07.2025, 11:42

Hrafn Tómasson í Þrótt R. (Staðfest)

Miðjumaðurinn Hrafn Tómasson hefur verið lánaður frá KR til Reykjavíkur Þróttara. Hrafn er kominn með leikheimild fyrir leik Þróttar og Leiknis í 13. umferð Lengjudeildarinnar, en sá leikur fer fram annað kvöld á Domusnovavellinum í Breiðholti.

FRÉTTIR17.07.2025, 11:00

Botnlið FHL fær til sín þriðja leikmanninn (Staðfest)

FHL hefur svo sannarlega ekki lagt árar í bát í baráttunni um að halda sæti sínu í Bestu deild kvenna þrátt fyrir að vera án stiga tíu leiki. FHL var núna að bæta við sig þriðja erlenda leikmanninum í sumarglugganum. FHL hefur samið við Candela Gonzalez. Candela er 22 ára spænskur miðjumaður.

FRÉTTIR17.07.2025, 10:26

Olivia Smith sú dýrasta í sögunni (Staðfest)

Olivia Smith frá Kanada er dýrasti leikmaður í sögu kvennaboltans eftir að hafa gengið í raðir Arsenal frá Liverpool fyrir eina milljón punda, eða um 165 milljónir íslenskra króna. Þessi tvítugi leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Arsenal en liðið vann Meistaradeild kvenna. Smith, sem hóf atvinnuferil sinn árið 2023, hefur heillað marga með hæfileikum sínum. Hún skoraði sjö mörk í tuttugu leikjum fyrir Liverpool á síðustu leiktíð og var mikilvægur hluti af sóknarleik liðsins. Þetta er mikilvæg styrking fyrir Arsenal, sem hafði sett sér markmið um að bæta hópinn eftir sigur í Meistaradeildinni. <i>„Það er forréttindi og heiður að skrifa undir hjá Arsenal,"</i> segir Smith. Smith, sem hefur spilað fyrir Kanada frá fimmtán ára aldri, hefur sýnt einstaka hæfileika bæði með landsliði og á félagsliðsferli sínum, meðal annars með hraða og tækni sem nýtist í fjölbreyttum hlutverkum á vellinum. Arsenal telur að þessi unga stjarna muni festa sig í sessi sem einn af helstu leikmönnum liðsins í framtíðinni.

FRÉTTIR16.07.2025, 21:00

Bakayoko til Leipzig (Staðfest)

Belgíski vængmaðurinn Johan Bakayoko er kominn til Leipzig frá PSV Eindhoven fyrir 22 milljónir evra.

FRÉTTIR16.07.2025, 20:03

Arnar Grétars tekinn við Fylki (Staðfest)

Arnar Grétarsson er tekinn við Lengjudeildarliði Fylkis en hann gerir samning út leiktíðina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fylkismönnum í kvöld.

FRÉTTIR16.07.2025, 20:00

Eyþór Daði í KV (Staðfest)

Eyjamaðurinn Eyþór Daði Kjartansson hefur fengið félagaskipti í KV frá KFS. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum KV í dag.

FRÉTTIR16.07.2025, 18:17

Yamal fær tíuna hjá Barcelona (Staðfest)

Spænska ungstirnið Lamine Yamal skrifaði loksins undir framlengingu á samningi sínum hjá Barcelona í dag en samningurinn gildir til 2031. Hann tekur þá tíuna af Ansu Fati.

FRÉTTIR16.07.2025, 15:40

Laurits Nörby til Fjölnis (Staðfest)

Fótbolti.net greindi frá því á mánudag að Fjölnir væri að sækja danska miðvörðinn Laurits Nörby en hann var á þeim tímapunkti búinn að æfa með liðinu. Fjölnir tilkynnti svo rétt í þessu um komu hans. Nörby er tvítugur danskur miðvörður sem kemur frá Hobro í dönsku B-deildinni.

FRÉTTIR16.07.2025, 14:00

Petrovic keyptur frá Chelsea (Staðfest)

Bournemouth hefur gengið frá kaupum á serbneksa markmanninum Djordje Petrovic frá Chelsea. Kaupverðið er 25 milljóinir punda sem er 11 milljónum punda meira en Chelsea greiddi fyrir hann þegar hann kom frá New England Revolution fyrir tveimur árum. Annað árið í röð fær Bournemouth markmann frá Chelsea því á síðasta tímabili var Kepa Arrizabalaga í marki Bournemouth, á láni frá Chelsea. Arsenal keypti svo Kepa á dögunum.

FRÉTTIR15.07.2025, 19:00

Cifuentes ráðinn stjóri Leicester (Staðfest)

Marti Cifuentes hefur verið ráðinn stjóri Leicester. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar. Cifuentes er 43 ára gamall Spánverji en hann tekur við af Ruud van Nistelrooy sem yfirgaf félagið eftir að Leicester féll úr úrvalsdeildinni. Hann var sjö mánuði í starfi.

FRÉTTIR15.07.2025, 18:30

Diouf kominn til West Ham (Staðfest)

West Ham hefur staðfest kaupin á vinstri bakverðinum El Hadji Malick Diouf frá Slavia Prag. Diouf er tvítugur landsliðsmaður Senegal en West Ham borgar 19 milljónir punda fyrir hann.

FRÉTTIR15.07.2025, 17:42

Samningi Kristófers Orra hjá KR rift (Staðfest)

Kristófer Orri Pétursson og KR hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að rifta samningnum hans við félagið. Kristófer er að glíma við meiðsli sem halda honum frá vellinum út tímabilið og mun hann ekkert koma meira við sögu í sumar.

FRÉTTIR15.07.2025, 14:07

Elvis mættur aftur til Eyja (Staðfest)

ÍBV hefur staðfest að Elvis Bwonomo hefur skrifað undir samning við félagið út keppnistímabilið en hann er að koma til liðsins í annað skiptið.

FRÉTTIR15.07.2025, 12:30

Jovan hættur hjá ÍBV (Staðfest)

Serbinn Jovan Mitrovic hefur snúið aftur til Serbíu eftir að hafa leikið fyrri hluta tímabilsins með ÍBV. Mitrovic tók samtals þátt í 14 leikjum fyrir ÍBV, þar af níu í Bestu deildinni og Mjólkurbikarnum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.