Fotbolti.net
01.06.10 - 19:09
Magnús Már Einarsson

Chris Iwelumo til Burnley (Staðfest)

Chris Iwelumo til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Burnley hefur keypt framherjann Chris Iwelumo frá Wolves en þetta er tólfta félag hans á ferlinum.
Iwelumo, sem er 31 árs, er mikið fyrir að breyta til og hann er ekki mikið fyrir að stoppa lengi hjá einhverju félagi.

Iwelumo hefur þó verið hjá Wolves frá því árið 2008 en á nýliðnu tímabili lék hann nokkra leiki með Bristol City á láni.

Brian Laws, stjóri Burnley, vonar að þessi skoski landsliðsmaður nái að hjálpa liðinu í Championship deildinni á næstu leiktíð.

Burnley féll úr ensku úrvalsdeildinni á dögunum en Laws er að styrkja leikmannahópinn og hann fékk einnig Dean Marney til félagsins frá Burnley á dögunum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.