01.07.10 - 09:54
Hafliði Breiðfjörð
Roy Hogdson tekinn við Liverpool (Staðfest)

Roy Hodgson.

Mynd: Getty Images

Roy Hodgson.

Mynd: Getty Images
Roy Hodgson er orðinn nýr knattspyrnustjóri Liverpool en félagið staðfesti þetta á vef sínum í morgun.
Hogson sem er 62 ára gamall kemur frá Fulham sem hann hefur stýrt undanfarin ár. Hann hefur áðu rstýrt liðum eins og Inter Milan, svissneska landsliðinu og fleirum.
Hann gerir þriggja ára samning við Liverpool og verður 18. knattspyrnustjórinn í sögu félagsins.
Hann verður kynntur fyrir fjölmiðlum seinni partinn í dag en þá mun hann hfa stýrt sinni fyrstu æfingu með liðið á Melwood æfingasvæði félagsins.
Hodgson hafði stýrt Fulham í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í maí og var kjörinn knattspyrnustjóri ársins í ensku deildinni.
,,Þetta er stærsta starfið með félagslið og það er mér heiður að taka við starfi knattspyrnustjóra farsælasta félags Bretlands,\" sagði Hodgson.
,,Ég hlakka til að hitta leikmennina og stuðningsmennina og hefja störf á Melwood.\"

Heimild: Vefur Liverpool