Fotbolti.net
01.07.10 - 11:28
Magnús Már Einarsson

Robbie Blake til Bolton (Staðfest)

Robbie Blake til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Bolton hefur samið við framherjann Robbie Blake en hann kemur frítt til félagsins frá Burnley.
Þessi 34 ára gamli framherji skrifaði undir eins árs samning við Bolton þar sem hann hittir fyrir sinn gamla stjóra Owen Coyle.

Blake hafnaði nýjum samningi hjá Burnley á dögunum en hann hefur leikið með liðinu undanfarin þrjú ár.

Þegar Burnley komst upp í ensku úrvalsdeildina tímabilið 2008/2009 fagnaði Blake mörkum sínum með því að girða niður um sig þegar hann skoraði eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

Að auki hefur Martin Petrov gengið formlega í raðir Bolton frá Manchester City en hann kemur líkt og Blake frítt til félagsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.