Fotbolti.net
01.07.10 - 12:01
Magnús Már Einarsson

Everton fær franskan framherja (Staðfest)

Everton fær franskan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur keypt framherjann Magaye Gueye frá franska félaginu Strasbourg en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi tvítugi leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við David Moyes og félaga.

Gueye kom upp í gegnum unglingastarf Strasbourg en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu fyrir tveimur árum.

Gueye er fjórði leikmaðurinn sem Everton fær í sumar en áður höfðu Jermaine Beckford, Jan Mucha og Joao Silva komið til félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.