01.07.10 - 18:03
Magnús Már Einarsson
Jonathan Greening til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jonathan Greening hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fulham en hann kemur til félagsins frá WBA.
Þessi 31 árs gamli miðjumaður var í láni hjá Fulham á síðustu leiktíð þar sem hann hjápaði liðinu meðal annars að komast í úrslit Evrópudeildarinnar.
Greening átti eitt ár eftir af samningi sínum við WBA sem komst á dögunum upp í ensku úrvalsdeildina.
Greening vildi þrátt fyrir það ekki fara aftur til WBA en hann vildi frekar vera áfram hjá Fulham og félögin hafa nú náð samkomulagi um félagaskiptin.

Heimild: Sky