Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 01. ágúst 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Olísmótinu á Selfossi frestað
Mynd: Merki
UMF Selfoss er búið að staðfesta frestun Olísmótsins sem átti að fara fram næstu helgi eftir verslunarmannahelgina. Mótinu er frestað vegna nýrrar bylgju Covid-19 sem ríður yfir landið þessa dagana.

Yfirlýsing UMF Selfoss:
Helgina 7.-9. ágúst var fyrirhugað að halda OLÍS mótið á Selfossi í 16. skipti. Mótið er stærsta verkefni knattspyrnudeildar UMFS ár hvert og hefur undanfarnar vikur verið í mörg horn að líta við skipulag og undirbúning mótsins, ekki síst í ár þar sem skipulag mótsins var sniðið að þeim fjöldatakmörkunum og sóttvarnaraðgerðum sem í gildi hafa verið. Skráning á mótið hefur aldrei verið meiri og stefndi í metþátttöku.

Í ljósi upplýsinga sem yfirvöld sendu frá sér í dag, þar sem hertari aðgerðir vegna kórónuveirunnar voru kynntar, þeirra á meðal að fjöldatakmörk verða lækkuð úr 500 manns niður í 100 manns og að tveggja metra reglan tekur aftur gildi og er því ekki lengur valkvæð, hefur knattspyrnudeild Selfoss og OLÍS tekið ákvörðun um að fresta mótinu um óákveðinn tíma. Reglurnar gilda næstu tvær vikurnar hið minnsta en mótsstjórn mun fylgjast vel með framgangi mála næstu vikurnar með það að markmiði að finna mótinu nýja dagsetningu, sem vonandi verður síðar í ágúst/september í ár ef aðstæður leyfa.

Þrátt fyrir að knattspyrnudeild Selfoss sjái sér fært um að halda mótið með breyttu sniði innan gildandi viðmiða telur deildin það vera samfélagsleg skylda sín að sýna ábyrgð og fresta mótinu þar til aðstæður í samfélaginu leyfa. Við tökum heilshugar undir orð Víðis um að „Nú gildir að standa saman og tækla þetta af ábyrgð“ og hvetjum okkur öll sem eitt til að tækla komandi daga og vikur af ábyrgð, samstöðu og skynsemi.

Við munum upplýsa um framgang mála á miðlum UMFS.

Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner