Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 01. ágúst 2021 15:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rangers neitaði að auglýsa styrktaraðila deildarinnar
Rangers hóf titilvörnina sína í skosku deildinni í gær með 3-0 sigri á Livingston.

Ianis Hagi, Scott Wright og Kemar Roofe skoruðu mörkin.

Bílasalan Cinch er aðalstyrktaraðili skosku deildarinnar en það vakti athygli að merki bílasölunnar var hvergi sjáanlegt á Ibrox Stadium heimavelli Rangers í gær.

Ástæðan er sú að félagið vildi ekki auglýsa fyrirtækið þar sem stjórnarformaður Rangers Douglas Park er eigandi Park's Motor Group sem er einnig bílasala.

Félagið neitaði að afhenda verðlaun fyrir mann leiksins í nafni Cinch.


Athugasemdir
banner
banner
banner