01.10.11 - 19:56
Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Brandsson tekur við KR (Staðfest)

Jón Þór Brandsson þjálfar kvennalið KR næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Brandsson þjálfar kvennalið KR næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Brandsson hefur tekið við þjálfun kvennaliðs KR en félagið staðfesti þetta á vef sínum rétt í þessu.
Jón Þór skrifaði undir þriggja ára samning við KR um þjálfun liðsins og mun einnig hafa yfirumsjón með þjálfun 2. flokks kvenna.
Hann tekur við starfinu af Björgvini Karli Gunnarssyni sem hætti með liðið eftir að tímabilinu lauk.
Jón Þór hafði þjálfað kvennalið Grindavíkur í sumar en hætti með liðið eftir að það féll úr Pepsi-deildinni í haust.
Þar á undan hafði hann þjálfað lið FH frá 2008-2010.

Heimild: Vefur KR