Fotbolti.net
01.11.11 - 12:21
Magnús Már Einarsson

Hjörtur Júlíus Hjartarson í Víking R. (Staðfest)

Hjörtur í búningi Víkings í hádeginu.

Hjörtur í búningi Víkings í hádeginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Hjörtur Júlíus Hjartarson hefur gengið til liðs við Víking R. en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið í hádeginu í dag.
Hjörtur hjálpaði Skagamönnum að komast upp í Pepsi-deildina í sumar en hann var þriðji markahæsti leikmaðurinn í 1. deildinni með 15 mörk.

Eftir tímabilið ákvað Hjörtur að fara frá ÍA og fjölmörg félög í fyrstu deild sýndu honum áhuga en á endanum varð Víkingur fyrir valinu.

Hjá Víkingi R. hittir hann fyrir Ólaf Þórðarson sem þjálfaði hann hjá ÍA á sínum tíma.

Um helgina gekk varnarmaðurinn reyndi Reynir Leósson einnig til liðs við Víking en hann var líka í liði ÍA í sumar.

Hjörtur, sem hélt upp á 37 ára afmæli sitt í gær, hefur lengst af á sínum ferli leikið með ÍA en hann var einnig hjá Þrótti 2007-2009 auk þess sem hann lék með Selfyssingum síðari hluta tímabilsins 2009.

Viðtal við Hjört mun birtast á Fótbolta.net síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.