01.11.11 - 12:29
Hafliði Breiðfjörð
Páll Guðlaugsson tekur við Klakksvík í Færeyjum (Staðfest)

Páll Guðlaugsson er kominn til Færeyja að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Páll Guðlaugsson hefur verið ráðinn þjálfari færeyska liðsins Klakksvík eða KÍ en hann skrifaði undir samning við félagið núna í hádeginu. Klakksvík endaði í fimmta sæti færeysku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Páll hefur undanfarin ár starfað hjá Fjarðabyggð fyrst sem þjálfari karlaliðs félagsins í tvö ár og svo með kvennaliðið þaðan sem hann hætti í haust.
Hann er 53 ára gamall og þekkir vel til í Færeyjum því þar varð hann Færeyjameistari með Gí bæði sem leikmaður og þjálfari á sínum tíma.
Hann þjálfaði einnig færeyska landsliðið á tímabili og á vef KÍ er í dag rifjað upp þegar liðið vann Austurríki 1-0 undir hans stjórn.
,,Fyrst og fremst er ég stoltur af því að fá þann heiður að verða þjálfari hjá KÍ. Ég er spenntur fyrir því að hitta leikmennina og fólkið í kringum KÍ. KÍ er lið sem hefur mikla möguleika og og ég mun gera allt til að koma KÍ aftur á toppinn í færeyskum fótbolta,\" er haft eftir Páli á vef félagsins.

Heimild: Vefur KÍ