Fotbolti.net
01.12.11 - 16:56
Hafliði Breiðfjörð

Atli Heimisson í Val (Staðfest)

Atli Heimisson ásamt Kristjáni Guðmundssyni þjálfara Vals.

Atli Heimisson ásamt Kristjáni Guðmundssyni þjálfara Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Atli Heimisson hefur gengið til liðs við Val en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið síðegis í dag.
Atli getur leikið allar stöður framarlega á vellinum en hann hefur verið á mála hjá norska félaginu Asker undanfarin þrjú ár.

Þessi 24 ára gamli leikmaður hóf meistaraflokksferil sinn með Aftureldingu og lék síðan með ÍBV í tvö tímabil áður en hann hélt til Noregs.

Atli hjálpaði meðal annars Eyjamönnum að komast upp í fyrstu deild árið 2008 en þá var hann valinn besti leikmaður deildarinnar.

Atli var markahæsti leikmaður Asker þegar liðið féll úr norsku fyrstu deildinni í haust en samtals skoraði hann 36 mörk í 74 leikjum á ferli sínum hjá félaginu.

Valsmenn hafa verið að styrkja sig sóknarlega en auk Atla hefur félagið fengið framherjann Hilmar Rafn Emilsson til liðs við sig í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.