01.12.11 - 17:06
Hörður Snævar Jónsson
Guðmann Þórisson í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Varnarmaðurinn Guðmann Þórisson hefur ákveðið að ganga í raðir FH-inga. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Guðmann mun skrifa undir samning við FH á næstu dögum.
Hann er uppalin hjá Breiðablik og hafði æft með þeim auk FH-inga síðan samningur hans í Noregi við Nybergsund rann út þar sem hann hafði verið í tvö ár.
,,Þetta er með erfiðari ákvörðunum sem ég hef tekið en ég tel FH-inga með hóp sem getur barist um alla titla sem í boði eru á Íslandi og þá var það stór þáttur að FH er í Evrópukeppni,\" sagði Guðmann í samtali við Fótbolta.net.
,,Það er erfitt að snúa baki við uppeldisfélaginu (Breiðablik) því ég hef alltaf verið þar. Þá er Breiðablik með einn færasta þjálfara Íslands og ég á marga af mínum bestu vinum eru Blikar en stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir í lífinu og mér fannst hagsmunum mínum best borgið í FH.\"
,,Ég mætti á æfingar hjá FH og þeir eru með gríðarlega sterkan hóp, Heimir og Laugi koma mér vel fyrir sjónir og ég er spenntur fyrir að taka þátt í þessu með þeim. Samkeppnin er mikil hjá FH en það er hollt fyrir alla leikmenn að taka þátt í svoleiðis.\"
Guðmann var fastamaður í liði Nybergsund á nýliðnu tímabili þegar liðið féll úr fyrstu deildinni og var valinn bestu að mati samherja sína.
Hann er 24 ára gamall miðvörður sem hafði leikið með Breiðablik allan sinn feril áður en hann fór til Noregs en er nú genginn í raðir FH.