01.12.11 - 21:09
Hafliði Breiðfjörð
Garðar Gunnlaugsson í ÍA (Staðfest)

Garðar í leik með Norrköping í Svíþjóð. Hann snýr nú aftur heim til ÍA.

Mynd: Guðmundur Svansson

Framherjinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson gekk í kvöld til liðs við uppeldisfélag sitt, ÍA sem leikur í Pepsi-deildinni í sumar eftir nokkurra ára fjarveru.
Þetta var staðfest á vef ÍA í kvöld en Garðar mun skrifa undir eins árs samning við félagið á laugardaginn.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem ÍA fær til liðs við sig í vetur eftir að liðið vann 1. deildina í haust og þar af þriðji leikmaðurinn sem snýr aftur til uppeldisfélagsins. Áður höfðu Ármann Smári Björnsson, Jón Vilhelm Ákason og Jóhannes Karl Guðjónsson samið við félagið.
Garðar hefur leikið erlendis undanfarin fimm ár og leikið með liðum eins og LASK Linz í Austurríki, CSKA Sofia í Búlgaríu og hjá IFK Norrköping í Svíþjóð þar sem hann skoraði meðal annars 30 mörk í 45 leikjum. Undir það síðasta lék hann síðan með þýska liðinu Unterhaching. Hann hafði fram að því að hann fór út leikið með Val eftir að hann fór frá ÍA á sínum tíma.
,,Mér lýst afskaplega vel á þetta allt saman, bæði þjálfarana Þórð Þórðar og Dean-ó, framundan eru spennandi tímar, hópurinn sem fyrir var sterkur hefur styrkst með komu sterkra manna í haust eins og Jóa Kalla, Jón Vilhelms og Ármanns Smára svo ég er bara fullur tilhlökkunar að spila í gulu treyjunni aftur,\" sagði Garðar á vef ÍA.

Heimild: Vefur ÍA