Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 19:00
Elvar Geir Magnússon
Búið að loka glugganum - Mateta áfram í Palace eftir mikið fár
Jean-Philippe Mateta.
Jean-Philippe Mateta.
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net
Nú klukkan 19:00 var félagaskiptaglugganum lokað í enska boltanum. Gluggadagurinn var svo sannarlega með rólegasta móti í ensku úrvalsdeildinni.

Með því að smella hér má sjá öll (Staðfest) félagaskiptin á einum stað.

Þó glugginn sé lokaður eru einhver skipti sem eiga eftir að detta í gegn, pappírum sem var skilað fyrir gluggalok en skipti sem hafa ekki verið staðfest.

Eitt stærsta mál dagsins snérist um franska sóknarmanninn Jean-Philippe Mateta hjá Crystal Palace. Hann vill yfirgefa Palace og var á leið til AC Milan áður en vandamál komu upp í læknisskoðun í gær.

Mateta fór í frekari skoðun í dag vegna hnémeiðsla og eftir að hafa fallið á henni þá hætti Milan við kaupin. Mateta verður því hjá Palace út tímabilið.

Palace var búið að ná samkomulagi við Wolves um kaup á Jörgen Strand Larsen til að fylla skarð Mateta og ákvað að vinna í að klára þau kaup þrátt fyrir að Mateta hafi fallið á læknisskoðun. Strand Larsen verður kynntur hjá Palace á næstu mínútum.

Belgíski fótboltablaðamaðurinn Sacha Tavolieri segir að hinn stæðilegi Mateta þurfi að fara í aðgerð á hné og verði þá frá keppni í um 3-4 mánuði en þetta hefur ekki verið staðfest.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
9 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
10 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
11 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner
banner
banner