02.06.10 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fabio Simplicio til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fabio Simplicio er kominn til Roma eftir að samningur hans rann út hjá Palermo. Simplicio getur spilað ýmsar stöður á vellinum en er oftast notaður á hægri kanti.
,,A.S. Roma og Fabio Henrique Simplicio vilja tilkynna að samningsviðræður hafa heppnast og að samningurinn bindir Simplicio við Roma frá 1. júlí 2010 til 30. júní 2013,\" sagði á heimasíðu Roma.
,,Leikmaðurinn fær að launum 1,8 milljónir evra á tímabil auk bónusa fyrir ýmis markmið.\"
Simplicio er 30 ára gamall og eftir að hafa átt nokkur frábær tímabil með Palermo hefur hann dalað. Nú er hann þó ánægður með að fá tækifæri hjá jafn stóru félagi og Roma er.
,,Fyrir mig er þetta mjög mikilvægt. Að ganga í Roma búning er heiður. Þetta er risastórt skref fyrir ferilinn minn og ég vil þakka öllum sem trúðu á mig,\" sagði Simplicio við vefsíðu félagsins.